Við erum með góð tengsl á Gatwick flugvelli þar sem gestir WOW air geta innritað farangurinn áfram út í heim um leið og hann er sóttur í töskusalinn. Þaðan má svo fara beint í öryggisleit í stað þess að finna innritunarborðið fyrir næsta flug.
Athugið að þjónustan er ekki í boði fyrir:
- Farþega á leið í framhaldsflug með flugfélögum sem bjóða ekki upp á Gatwick Connect.
- VIA farþega á leið til Bandaríkjanna.
Sjá nánar:
http://www.gatwickairport.com/at-the-airport/flight-connections/gatwickconnects-at-the-airport/