Hvað geri ég ef flug fellur niður?
Við biðjumst innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þú kannt að hafa orðið fyrir vegna aflýsingar á flugi hjá okkar.
Ef flugi er aflýst af okkar hálfu átt þú rétt á að fá ónotaða flugmiða í bókuninni með WOW air endurgreidda.
Þú gætir átt rétt á öðrum valkostum í stað endurgreiðslu en það fer eftir lögum og reglum hvers ríkis sem gilda um hverja bókun. Sem dæmi má nefna reglugerð EC nr. 261/2004 en á grundvelli hennar geta farþegar valið endurgreiðslu á flugmiða eða nýtt sér annað hvort af neðangreindum úrræðum:
- Færa flugið á aðra dagsetningu með WOW air, að þínum hentugleika, að því gefnu að um laus flugsæti sé að ræða.
- Bíða eftir næsta lausa flugi með WOW air.
Ef þú telur þig eiga rétt á skaðabótum þá getur þú sent okkur skaðabótakröfu hér.
Við bendum á að skaðabótaábyrgð WOW air fellur niður skapist óviðráðanlegar aðstæður sem ekki er mögulegt að afstýra. Farþegar eiga ekki rétt á bótum þegar flugi er aflýst vegna eftirfarandi orsakaþátta. Athugið að ekki er um tæmandi lista að ræða.
Vegna:
- öryggisáhættu
- óhagstæðra veðurskilyrða
- verkfalla
- veikinda áhafna
- ótryggs stjórnmálasambands
- ákvarðana tekna af flugumferðastjórn
- annarra ófyrirséðra óvæntra atvika sem geta stofnað öryggi loftfars, áhafna og farþega í hættu.
Þessi tilkynning veitir þér aðeins upplýsingar um hugsanlegan rétt þinn samkvæmt lögum, hún veitir þér ekki samningsbundinn rétt til bóta.
*Ferðaskrifstofubókanir – ef þú hefur ekki fengið upplýsingar sendar á netfang þitt eða í síma bendum við þér á að hafa samband við ferðaskrifstofuna þína.